Ölfus > Gisting

    Akurgerði

 

Tvö 54 sumarhús. Bústaðurinn skiptist í 2 svefnherbergi; annað með hjónarúmi og hitt kojum og 120 cm rúmi. Auk þess er svefnloft með dýnum. Niðri er stofa, eldhús með borðkróki og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss, sængur og koddar eru fyrir 8. Ekki er séð fyrir sængurverum. Við bústaðinn er heitur nuddpottur og stór verönd með húsgögnum og gasgrilli.

 

 Hótel Hlíð

 senda fyrirspurn

Hótel Hlíð er einungis í 6 km fjarlægð frá Hveragerði og um það bil 45 km frá Reykjavík.  Andrúmsloftið er afar þægilegt og hótelið mjög fallega innréttað. Hlíð býður upp á 21 herbergi með sturtu/wc, útvarpi, sjónvarpi og internet-tengingu.

 

    Gistiheimilið Hjarðarból

 senda fyrirspurn

Gistiheimilið Hjarðarból er vel í sveit sett, aðeins í um 30 mínútna akstur frá Reykjavík. Stutt í allar helstu náttúruperlur Íslands. Notaleg gisting og heimilislegur matur á sanngjörnu verði.

 

  Gljúfurbústaðir

 senda fyrirspurn

Frístundahús í hæsta gæðaflokki þar sem góður aðbúnaður gesta er í fyrirrúmi. Í bústöðunum eru rúm fyrir 6 manns, þar af tvö hjónarúm með heilum dýnum, sængur og koddar, sturtuklefi, fullbúið eldhús, sjónvarp, myndbandstæki, geislaspilari, gasgrill, garðhúsgögn á afgirtri verönd, heitur pottur, svo og mjög vönduð húsgögn.

 

  Hótel Eldhestar

 senda fyrirspurn

Notalegt sveitahótel í einungis 40 km fjarlægð frá höfuðborginni. 10 tveggja manna herbergi með sérbaði og verönd.  Sjónvarp og internettenging.  Aðgengi fyrir fatlaða. Heitur pottur í nágrenninu. Matsalur fyrir 50 manns.

 

  Núpar í Ölfusi

 senda fyrirspurn

Vönduð heilsárshús með öllum nútímaþægindum. Húsin eru í tveimur stærðum: minni húsin eru fyrir 2-4 með einu svefnherbergi, stærri húsin eru fyrir 4-6 með tveimur svefnherbergjum. Handklæði, rúmföt og þrif eftir dvöl er innifalið í leigu.  Öll húsin eru með heitum pottum.

 

T-bær

 

Lítil íbúð þar sem boðið er upp á svefnpokagistingu fyrir þrjá til fjóra. Eldunaraðstaða. Lítið kaffihús og tjaldsvæði.

 

  Tjaldsvæðið við Íþróttamiðstöðina

 

Sturtu- og eldunaraðstaða. Húsbílar og fellihýsi hafa aðgang að rafmagni. Opið frá 15. maí til 1. okt.