|
|||
|
Uppsveitir Árnessýslu > Afþreying
Verslunin Vala er annars vegar matvöruverslun
með áherslu á lífrænar vörutegundir, og hins vegar Listhús. Í Listhúsinu gefst
tækifæri til að kaupa eða skoða það ótrúlega fjölbreytta úrval handverks
sem verður til á Sólheimum. Þar kennir ýmissa grasa, alls konar listmunir
og handverk frá hinum mismunandi vinnustöðum á Sólheimum og kertin frá
kertagerðinni.Verslunin er opin virka daga kl. 14.45 - 18
Handverk og listmunir til sýnis og sölu. Námskeið. Einnig húsgagnabólstrun.
Ógleymanlegar hestaferðir með leiðsögn í fallegri náttúru.
Húsdýragarður,
kaffihús, leikvöllur, minigólf og púttvöllur. Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Opið:10.00-18.00
alla daga yfir sumartímann.
ATV Tours býður upp á fjórhjólaferðir um Haukadalsskóg þar sem ekið er um torfarna slóða í skóginum yfir ár og læki og upp á Haukadalsheiði. Leiðirnar eru fjölbreyttar og valdar með tilliti til hópsins sem ferðast er með hverju sinni. Frábær leið til að kynna landið fyrir ferðamönnum í nágrenni við Gullfoss og Geysi. Til að aka hjólunum þarf að hafa bílpróf, en allir geta ferðast með sem farþegar. Hjólin eru fjórhjól eða sexhjól, sjálfskipt, auðveld og örugg í akstri. Ferðir alla daga, lágmarksfjöldi 4 manns en hámark 38.
Í Úthlíð hefur verið rekin hestaleiga í
12 ár. Boðið er upp á hesta fyrir vana sem óvana og leiðsögumaður fylgir
alltaf með. Reiðleiðirnar eru fallegar en farið í upp í Úthlíðarhraun.
Hægt er að komast í lengri ferðir t.d. inn í Brúarárskörð en það
tekur um 5-6 klst með labbinu upp. Hestaleigan er opin frá kl. 13:00 til
18:00 alla daga nema föstudaga. Á
staðnum er einnig sundlaugin Hlíðarlaug, veitingaskálinn
Réttin þar sem haldin eru böll um helgar og aðrar uppákomur, bensínstöð,
ferðamannaverslun og 9 holu golfvöllur.
Litbolti er skemmtilegur kostur fyrir alls kyns hópa, vini eða vinnufélaga. Völlurinn er staðsettur nálægt ferðaþjónustunni í Úthlíð á bænum Rauðaskógi.
Komdu með í Flúðasiglingu á Hvítá
- og taktu vini þína með, fjölskyldu eða vinnufélaga. Hvítá er á fyrir
alla og siglingin passleg fyrir óvana og hvers kyns hópa en um leið frábær
skemmtun og undursamleg náttúruskoðun. Flúðaskálinn okkar að
Drumboddsstöðum er aðeins í um 1-1½
klst akstursfjarlægð frá Reykjavík og í um 10 km fjarlægð suður
af Geysi. Þar er boðið upp á fullkomna veitingaaðstöðu; skálinn getur hýst
allt að 100 manns í einu og hópar geta valið um matseðil á hóflegu verði.
Símanúmerið á Drumboddsstöðum er 486 8990.
Boðið
upp á ferðir með leiðsögn um gróðurhúsin. Opið samkvæmt
samkomulagi.
Gestir
eru leiddir í gegnum sögu lands og þjóðar allt frá mótun til nútíðar
og er notast við hátæknibúnað og líkön af fullkomnustu gerð. Í
Geysisstofu má m.a. fræðast um eldgos, jarðskjálfta, jökla, hveri,
fossa, vatnsbúskap og gróðurfar.
Bátaleigan er rekin á sumrin og er í umsjá Íþróttamiðstöðvar Íslands. Kajakar og árabátar, geta einnig útvegað veiðileyfi og farið með hópa í golf á golfvöllinn í Miðdal. Bjóða upp á ýmis konar afþreyingu fyrir fjölskyldur og hópa, s.s. inni- og útileiki, ratleiki o.fl. Sjá um gufubaðið á Laugarvatni þaðan sem bátaleigan er rekin.
Nýr, reyktur silungur.
Byggðasafnið að Gröf er opið eftir samkomulagi.
Jeppaferpir fyrir 5 eða fleiri.
Ýmis
konar handverk; bútasaumur, tuskudúkkur og trévara. Námskeið, heima
og að heiman.
Fjölbreytt úrval steyptra
listmuna í garðinn, sumarbústaðinn, á sólpallinn, húsvegginn,
svalirnar eða hvar sem er. Munirnir geta verið úti allt árið um
kring. Opið alla daga frá kl. 13:00 til 18:00 og eftir samkomulagi.
Glervinnustofa. Mikið úrval
af skálum, kertastjökum, myndum, ostabökkum o.fl.
Pizzur og aðrar veitingar.
Syðra-Langholt býður upp á hestaferðir eftir samkomulagi. Opið allt árið.
Hestaferðir, gisting og matur eftir samkomulagi.
Steinsholt er mjög vel staðsett með tilliti til lengri
og styttri hestaferða. Við erum alveg við brún hálendisins í mjög
fallegu umhverfi. Okkur væri það mikil ánægja að leyfa ykkur að njóta
þess með okkur hvort sem það er í langan eða stuttan tíma, allt
eftir þínum óskum og þörfum.
Þið getið komið á hestbak og farið í klst. reiðtúr eða
lengur.Við bjóðum upp á mjög skemmtilegar tveggja og þriggja tíma
hestaferðir og frábærar dagsferðir.
Reiðskóli, hestaferðir, yoga, gisting o.fl.
Aðstandendur Hestakrárinnar hafa mikla reynslu í ferðaþjónustu og hafa til margra ára rekið hestaleigu og skipulagt hestaferðir fyrir hópa, allt frá dagsferðum upp í vikuferðir. Árlegar Prinsessu- og Víkingaferðir eru t.d. bráðskemmtilegar óvissuferðir, sérsniðnar að þörfum hvors kyns fyrir sig, og njóta mikilla vinsælda.
Þjóðveldisbærinn er endurgerð hins forna Stangarbæjar og er opinn frá 1. júní til um 8. september alla daga vikunnar frá kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 18:00 og skv. samkomulagi.
|
|