Rangárþing ytra og nágrenni > Gisting

Árhús

 senda fyrirspurn

28 smáhýsi með allt að 90 manna gistiaðstöðu, stórt og gróið tjaldstæði og góð aðstaða fyrir húsbíla. Hægt er að leigja 21 smáhúsanna með eða án rúmfata og eru þau með sturtu/wc, eldunaraðstöðu og ísskáp. Kaffihús, matar og veisluaðstaða. milligangur um hestaferðir, bílferðir um hálendið, hellaskoðun, tónlist fyrir árshátíðir og aðra afþreyingu. Opið allt árið.

 

Áshestar

 senda fyrirspurn

Hestaferðir, svefnpokagisting fyrir 20-30 manns. Panta þarf fyrirfram.

 

 

Ferðaþjónustan Laugalandi

 

Svefnpokagisting fyrir u.þ.b. 100 manns auk eldunaraðstöðu. Tjaldsvæði fyrir 100-150 tjöld.  Leiksvæði, sundlaug og fundarsalir. Sumaropnun.

 

Gistiheimilið Brenna

 senda fyrirspurn

Svefnpokapláss í rúmum fyrir allt að 20 manns í 4-5 manna herbergjum.  Gestir geta notað sína eigin svefnpoka eða leigt rúmföt á staðnum, en einnig getur fólk komið með rúmfötin með sér. Lítið eldhús er í húsinu þar sem gestum er heimilt að elda sinn eiginn mat og annað stórt eldhús fyrir hópa. Opið allt árið.

 

Gistiheimilið Heimaland

 senda fyrirspurn

Lítið sumargistihús við rætur Heklu með 5 tveggja manna herbergjum. Einnig tvö minni sumarhús, annað þeirra rúmar tvo gesti en hitt tvo til fjóra. Boðið er upp á morgunmat og vel búið gestaeldhús er á staðnum. Heitur pottur. Aðstaða fyrir hestahópa. 

 

Gistihúsið Mosfell- Fosshótel

 senda fyrirspurn

Gisting í uppábúnum rúmum eða svefnpokum. 20 herbergi með vaski og 25 herbergi með salerni og sturtu. Morgunverður. Veitingar, eldunaraðstaða, sturtur og WC. Opið allt árið.

 

 

 

Hálendismiðstöðin Hrauneyjum

 senda fyrirspurn

Hálendismiðstöðin er á fjölförnum gatnamótum, þ.e. inn í Landmannalaugar F 208 og norður um Sprengisand F 26 eða austur í Veiðivötn og því vinsæll áningarstaður ferðamanna áður en lengra er haldið inn á hálendið. Boðið er uppá gistingu í 72 tveggja manna herbergjum ýmist í kojum eða hjónarúmum. Veitingasala og vínveitingar. Sala veiðileyfa í Þórisvatn, Selsendavatn og Köldukvísl. Opið allt árið.

 

 

Hótel Háland

 senda fyrirspurn

Í hótelinu eru 16 2ja manna herbergi, hvert með snyrtingu og baði. Auk þess 2 svítur og 2 stór fjölskylduherbergi. Á hótelinu er aðstaða fyrir fundi og smærri ráðstefnur. Þar er jafnframr gufubað og heitur pottur. Þjónustað er frá Hálendismiðstöðinni í Hrauneyjum.

 

 

 

Hekluhestar

 senda fyrirspurn

Hestaferðir, gisting fyrir allt að 18 manns í gistihúsi sem var byggt 1990 og er í stíl gömlu íslensku torfbæjanna, veitingar. Möguleiki á dvöl á sveitabænum þar sem gestir taka þátt í daglegum verkum. Opið allt árið.

 

Hellirinn

 senda fyrirspurn

Í hjarta Suðurlands býður Hellirinn gistingu í fjórum fullbúnum heilsárshúsum. Tvö fjögurra manna hús með svefnlofti. Eitt sex manna hús og eitt sextán manna hús. Í öllum húsunum er stofa, góð eldunaraðstaða, baðherbergi með sturtu, sjónvarp og útvarp. Þá er einnig sólpallur, heitur pottur og kolagrill við öll húsin. Hægt er að velja um uppbúin rúm eða svefnpokapláss. Stærsta húsið er tilvalið fyrir hópa og í því eru fjögur herbergi.

 

Landmannahellir

 senda fyrirspurn

Friðsæll áningarstaður í Friðlandi að fjallabaki. Hentar sérlega vel fyrir fjölskyldur, starfsmannahópa og reyndar hvern sem vill njóta kyrrðar og dulúðar fjallanna. Góð aðstaða þar fyrir hesta og ferðafólk. Svefnpokagisting er í þremur húsum fyrir samtals 64 gesti í einbreiðum og tvíbreiðum kojum. Húsin eru með upphitun, rennandi vatni, eldunaraðstöðu og vatnssalerni. Einnig svæði fyrir tjöld, fellihýsi og húsbíla, útigrill og veiðileyfasala. Opið frá miðjum júní fram í september.  

 

Hrólfsstaðahellir

 senda fyrirspurn

Gisting í uppábúnum rúmum í tveggja og þriggja manna herbergjum. Fullbúið eldhús, setustofa, sameiginlegt baðherbergi. Ytri Rangá, ein þekktasta laxveiðiá landsins rennur svo að segja við dyr gistihússins og fyrir unga og upprennandi veiðmenn er Pollurinn, lítil tjörn við ána, sem hægt er að renna fyrir fisk í. Þjónusta við ferðafólk á hestum, t.d. gisting, beitar- og áningarhólf, leiðsögn um nágrennið, járningar og fleira. Margar fallegar reiðleiðir eru í nágrenni Hrófsstaðahellis.       

 

Hótel Rangá

 senda fyrirspurn

4 stjörnu gisting í 27 herbergjum, þar af 6 svítur.. Veitingar og vínveitingar.  Heitir pottar, hestaleiga og sala veiðileyfa í Rangá og Lambhagavatni. Fundarsalur fyrir 30 manns. Opið allt árið.

 

Hótel Rangársel

 senda fyrirspurn

Lítið sveitahótel með veitingasal og bar á herbergjum. Öll herbergin eru með baði. Fundarsalur fyrir 30 manns. Einkasamkvæmi, fundir og starfsmannafundir ofl. Heitur pottur. Boðið er uppá göngu- og bílferðir um hálendið og perlur Suðurlands. Skemmtilegar gönguleiðir.

 

Leirubakki

 senda fyrirspurn

Ferðaþjónusta við rætur Heklu. Gistirými fyrir 50 manns í uppábúnum rúmum eða svefnpokaplássi.. Í gistihúsinu eru sauna og heitir pottar, salur fyrir 50 manns og setustofa. Morgunverðarhlaðborð er á borðum og málsverðir eftir pöntunum. Einnig sönghús sem er 100 manna veisluskáli, tjaldsvæði, eldunaraðstaða, hestaleiga, hestaferðir og reiðhöll fyrir námskeiðahald og tamningar.

 

Rjúpnavellir

 senda fyrirspurn

Gistiskálar með aðstöðu fyrir 20-30 manns í svefnpokaplássi. Í skálanum er eitt sérherbergi með rúmum fyrir fjóra og kojur fyrir 20 í sal. Arinofn, stórt eldhús með gaseldavél, kalt vatn, tvö salerni. Stór og góð forstofa ásamt góðri verönd.

 

Galtalækjarskógur

 senda fyrirspurn

Galtalækjarskógur er um 40 hektara svæði með kjarrivöxnum birkitrjám með grasbölum á litlum og stórum svæðum. Tjaldsvæðið gefur því mikla möguleika á tjaldróðrum og stæðum fyrir fellihýsi og tjaldvagna. Aðstaða fyrir ættarmót, veitingasala, samkomusalur, samkomuhús og frábært leiksvæði.

 

Herríðarhóll

 senda fyrirspurn

Gisting: 5 tveggja manna rúmgóð herbergi. Hestaleiga, hestaferðir, hestasala. Á sumrin er boðið upp á dvöl heima á bænum og m.a. sérstakt fjölskyldprógramm þar sem öll fjölskyldan fær að njóta sín á hestbaki, bæði vanir sem byrjendur. Morgunmatur, hálft eða fullt fæði eftir óskum.

 

Hestheimar

 senda fyrirspurn

Gisting: 4 tveggja manna herbergi og 55 m² svefnloft. Hestaleiga, hestaferðir, hestasýningar og hestasala. Veitingasala og margt fleira, s.s. línudanskennsla og óvissuferðir. Einnig boðið upp á sveitadvöl þar sem fjöskyldan getur komið og notið verunnar í sveitinni, verið á hestbaki og tekið þátt í því sem er verið að gera á bænum.

 

Ármót

 

Hestabúgarður. Gisting, veitingar, vínveitingar, hestaleiga og hestaferðir. Gistihúsið á Ármótum er á tveimur hæðum. Á efri hæðinni eru þrjú tveggja manna herbergi, eitt baðherbergi með sturtu og annað með sturtu og nuddbaðkari. Á neðri hæðinni eru tvö tveggja manna herbergi, annað stórt fjölskyldu herbergi fyrir allt að fimm manns, baðherbergi með sturtu og gestasnyrting.

 

Galtalækur II

 senda fyrirspurn

Lítil sumarhús í skjólgóðu umhverfi sem hýsa allt að 18 manns. Öll húsin eru með með WC en sturtuaðstaða er rétt við húsin. Eitt húsið er fullbúið sumarhús með eldunaraðstöðu, WC og sturtum. Seld eru veiðileyfi í Tangarvatn.

 

Tjaldsvæði Þykkvabæ

 

Fallegt tjaldsvæði í Þvikkvabæ. Góð aðstaða fyrir húsbíla og tjaldvagna. Aðstaða fyrir ættarmót og annan mannfagnað. Kjörið fyrir fjölskyldur og hópa sem vilja vera útaf fyrir sig. Góð leiktæki fyrir börn. Fótboltavöllur. Stutt í sandinn og sjóinn.

 

Efri Rauðalækur

 senda fyrirspurn

Gistiaðstaða í lítilli íbúð áfastri við hesthús. Tvö herbergi með góðum rúmum fyrir 10-12 manns. Svefnpokar eða uppábúin rúm eftir óskum hvers og eins. Eldunaraðstaða og öll áhöld. Opið allt árið.