Vík > Veitingar

Halldórskaffi

 senda fyrirspurn

Halldórskaffi er í austurenda Brydebúðar og ber með sér sjarma liðinnar tíðar. Kaffihúsið býður upp á kaffiveitingar og létta rétti. Þar er einnig góð aðstaða til myndlistasýninga yfir sumarið. Halldórskaffi er opið alla daga á sumrin frá kl. 11:00 til 23:00 sunnudaga til föstudaga en 11:00 til 02:00 á laugardögum.

 

Hótel Höfðabrekka

 senda fyrirspurn

Á Hótel Höfðabrekku er veitingastaður sem tekur allt að 120 manns í sæti þar sem gestum er boðið upp á ljúffengt kvöldverðarhlaðborð yfir sumartímann. Einnig er hádegisverður í boði fyrir hópa, en gestgjafarnir á Höfðabrekku hafa ætíð lagt áherslu á trausta og persónulega þjónustu, góðan mat og vinalegt umhverfi í veitingasal sínum.  

 

Hótel Lundi

 senda fyrirspurn

Veitingasalur og bar.

 

Víkurskáli og Ströndin

 

Söluskáli, bensínstöð og vinsælt veitingahús, Víkurgrill, þar sem boðið er upp á algengan heimilismat og sérrétti af grillinu. Í veitingasalnum Ströndinni er tekið á móti hópum í mat.  

 

 

Leita í vefsíðu